Leikskólakennaranemarnir!
Klukkan
11.03.2009 20:02:13 / Steinunn Erla

soldið snemma í því...

En það er betra að vera pottþéttur á svona mikilvægum hlutum!

Er ekki málið að hafa partí 15.maí sem svona útskriftardjamm?? Við skilum skýrslunni og kynningunni þennan dag og það er spurning að grilla saman um kvöldið. Vilborg ætlaði að skoða það hvort hún myndi halda þetta boð en annars er örgla einhver til.


Þannig takið daginn frá fyrir okkur saman:D:D:D

Svo var önnur hugmynd, og það var hvort einhver væri til í útskriftarferð í haust? Það yrði þá líklegast bara helgarferð í kannski okt-nóv þegar allir eru búnir að vinna í einhvern tíma og kannski safna sér aðeins pening. Hvernig líst ykkur á??





» 7 hafa sagt sína skoðun

16.02.2009 14:17:33 / Steinunn Erla

heimsókn í leikskóla

Á föstudag er okkur boðið í heimsókn í leikskólann Kór og ungbarnaleikskólann Sólheimum. Endilega reynið að komast, verður gaman að skoða þessa leikskóla.

Leikskólinn Kór, mæting kl 9:10 á föstudag Baugakór 25.

svo brunum við á næsta stað...

Ungbarnaleikskólinn er í Sólheimum 29 kl. 10:30

Þetta er frábær upphitun fyrir Árshátíðina- gætum jafnvel borðað í hádeginu saman...??
Veit um nokkra sem ætla að koma en endilega ef þið sjáið þetta látið mig vita:)

Steinunn


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.02.2009 12:45:17 / Sigga

Halló

er ekki allir að fara yfir um á verkefnum!

......en er ekki komin stemming fyrir Árshátíð?

» 4 hafa sagt sína skoðun

12.01.2009 17:25:07 / Sigurlaug

Málþroski og þróun læsis


Eruð þið búin með þennan áfanga??? Eigið þið bókina...

Language development from theory to practice.

Endilega látið mig vita ef þið eigið hana og viljið selja mér, eða þekkið einhver sem gæti hugsanlega selt mér hana :)
kv.
Sigurlaug


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.01.2009 21:25:47 / Sigurlaug

Eigið bækur til að selja mér :)

Hæhæ skvísur og strandgæjar
Gleðilegt ár öll saman...

Jæja þá er ég að fara að taka þessa blessuðu Aðferðafræði núna, er einhver hér sem væri til í að selja mér bókina og heftið á góðu verði???

Endilega kommentið sem fyrst ef ´þið eruð til, er engan vegin að tíma að kaupa þetta nýtt svona í kreppunni ;)
kv.
Sigurlaug

» 4 hafa sagt sína skoðun

22.12.2008 17:04:54 / Vilborg

Jóla jóla

Gleðileg jól!



Sjáumst hress á nýja árinu.... :)


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.12.2008 12:01:01 / Sigga

Próflokadjamm

Halló fallega fólk..
Próflokadjamm..Kennó ..bekkurinn saman..
gleði og stuð...koma með sitt eigið djús..
og fögnum saman að vera búin í prófum!!

Staðsetninginn er 12.des upp í skóla...


» 13 hafa sagt sína skoðun

24.11.2008 13:47:53 / Tinna

smá svona fyrir próflestur..

Íslenskur lýtalæknir var staddur á ráðstefnu erlendis með kollegum sínum.

Eftir langa og stranga dagskrá ráðstefnunnar héldu ráðstefnugestir á

öldurhús og gerðu sér glaðan dag. Eftir því sem líða fór á kvöldið og

nóttina þynntist hópurinn og lokst sátu einungis þeir þaulsetnustu eftir.



Þegar þeir höfðu ekkert meira að tala um fóru þeir að segja hetjusögur af

þeim afrekum sem þeir höfðu unnið á skurðborðinu.



Einn Bretinn sagði sögu af því að hann ásamt teymi sínu hafi tekið á móti

sjúklingi sem missti hendina í prentsmiðju. Á sjúklinginn græddu þeir

nýjan handlegg, lófa og fingur og eftir að hann kom til starfa aftur varð

hann svo góður og öflugur verkmaður að hann vann á við 4 og því fóru þrír

á atvinnuleysisskrá sem áður störfuðu hjá fyrirtækinu.



Rússnenskum lækni fannst ekki mikið til þess koma og sagði frá manni sem

lent hafði inní kjarnaofni. Þeir fengu ekkert annað en hárið inná

skurðborðið til sín, græddu á það höfuð, búk og útlimi. Þessi maður varð

svo góður verkmaður þegar hann snéri aftur til starfa að hægt var að segja

upp heilli vakt í kjarnorkuverinu, 9 manns fóru á atvinnuleysisskrá.



Íslenski læknirinn sagði iss við þessari sögu. "Ég var einu sinni staddur

niðrí Austurstræti og fann rosalega vonda prumpulykt. Ég veiddi hana í

poka og brunaði með hana uppá Borgarspítala og skellti henni á

skurðborðið. Við græddum á þetta búk, höfuð, útlimi og enduðum með að

setja krullur ofaná þetta allt saman. Úr þessu varð Davíð Oddsson og hann

er á góðri leið með að setja alla þjóðina á atvinnuleysisskrá".



GANGI YKKUR ÖLLUM SEM BEST Í PRÓFLESTRI OG PRÓFUNUM




» 1 hafa sagt sína skoðun

15.10.2008 09:39:51 / Sigga

Bleikt

Ég hugsaði til að það væri komin tími að virkja þessa vefsíðu..:d
og hugsaði til bleiku slaufurnar sem er í gangi í samfélaginu..
það er nú kreppa svo mitt innlegg er að breyta lit á síðunar...8)


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.10.2008 09:11:10 / Sigga

Til hamingju

Hún Sigrún Alla átti afmæli í gær ..,,hún átti afmæli í gær,
  hún átti afmæli í gær ,
hún átti aaffmmæli hún Sigrún ,hún átti afmæli í gær!!!.." vííí...
Til hamingju með afmælið skvísa..


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.09.2008 18:50:15 / Steinunn Erla

Oktoberfest!!

Í næstu viku er Oktoberfest Háskólans- fullt af bjór og gaman.

Eigum við ekki að skella okkur saman?

Þetta er haldið í tjöldum fyrir neðan háskólann- var það allavega seinast.... 


» 7 hafa sagt sína skoðun

09.09.2008 12:01:49 / Steinunn Erla

Eða Laugarvatnsferð*???

Já eða þá að við breytum þessu partíi í ;">Laugarvatnsferð???? Kennó er að fara á Laugarvatn á föstudag og kannski væri gaman að fara þangað í staðinn? Frír bjór og grill og fullt af leikjum sem við getum unnið! Gætum mas hist hjá mér fyrst og farið svo saman upp í skóla.

Það á að hittast í skólanum kl 15 og leggja af stað kl 16. Við fórum nokkur í þessa ferð á 1 ári og það var geggjað- tókum fyrstu rútu heim kl 12 og maður getur þá annað hvort haldið áfram djamminu í bænum eða farið í beddann, hvernig líst ykkur á þetta???

Er stemning fyrir Laugarvatni eða heimapartíi????


sjálf er ég spennt fyrir Laugarvatni:D:D


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.09.2008 17:43:19 / Steinunn Erla

Back-to-school party

Já það er nauðsynlegt að hafa partí svona í byrjun vetrar áður en verkefnin verða yfirgengileg!

Það er partí hjá mér á föstudaginn og það er að sjálfsögðu þema og það er Litríkt allir að koma í fullt af litum!!

kl 20.30 verður hurðin opnuð

Látið vita hvort þið komist
og allir að koma með 100 kall í snakkpening


skál í boðinu!!

S

» 4 hafa sagt sína skoðun

04.09.2008 10:56:11 / eyrun

Til hamingju með afmælið Klara mín :)

Hún á afmæl'í dag
hún á afmæl'í dag
hún á afmæl'ún Klara
hún á afmæl'í daaaaaag

:haha:


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.08.2008 15:32:48 / eyrun

Skólinn barasta í næstu viku



Sjáumst hress í næstu viku! :d


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15